Spurt og svarað
Spurt og svarað
Framleiðsla fata hefur hækkað töluvert á milli árana 2000 og 2015 en á sama tíma hefur líftími fata lækkað mjög mikið. Fólk kaupir mörg föt og notar þau lítið sem er ekki gott fyrir umhverfið. Við viljum að bjóða upp á hágæða föt úr góðu endurunnu efni sem endast langt og maður getur notað fötinn langt, jafnvel að láta þau endast fyrir nokkrar kynslóðir. Ef fólk eins og við munum ekki láta heyrast, og ef það koma fleiri og fleiri óumhverfisvæn fata fyrirtæki þá verður það að vandamáli. Áhyggjur af sjálfbærni eru miklar meðal yngri kynslóða og vaxa almennt. Vörumerki sem sýna forystu og framkvæma sjálfbærni geta tryggt sér samkeppnisforskot og unnið stóran hlut á ört vaxandi markaði sem er á sama tíma okkar markmið. (Claudia D'Arpizio, Bain & Company)
Fatafyrirtæki sem notar endurunnið efni getur sameinað sjálbærni, hlýju og fallega hönnun með því að leggja áherslu á góða hönnun og vistvæn efni á sama tíma. Samkvæmt Word Intellectual Property Organization (WIPO) eru iðnhönnun og útlit vara mjög mikilvæg vegna þess að neytendur velja oft vörur út frá því hvernig þær líta út og hvernig þær höfða til þeirra sjónrænt. WIPO útskýrir einnig að iðnhönnun snúist um form, liti, mynstur og efni sem gera vörur bæði aðlandi og sérstakar. (WIPO, 2001) Sjálfbærni snýst ekki bara um innri starfsemi heldur líka um að hafa áhrif á aðfangakeðjuna. Fyrirtæki geta krafist meira ábyrgðar og gagnsæis frá birgjum, sem hjálpa til við að minnka neikvæð umhverfisáhrif lengra út í kerfinu. þetta gerir sjálfbærni að sameiginlegu verkefni margra aðila, ekki bara eins fyrirtækis. (Ragnheiður Tryggvadóttir, 2025)
Með því að nota endurunnin efni getum við minnkað okkar kolefnisspor töluvert meira og samt búið til ný föt sem eru þægileg og tískuleg á sama tíma. Við munum ekki nota einnotaðar vörur t.d. úr plasti eða efni t.d. pólýester eða slík efni. Markmið fyrirtækisins er einnig að leggja mikla áherslu á ábyrgri neyslu og hvetja fólk til að velja sjálfbærari lausnir í fatnaði. Samkvæmt frá EATware geta umhverfisvænar vörur hjálpað fyrirtækjum að draga úr úrgangi og minnka mengun, auk þess, neytendur eru sífellt líklegri til að styðja fyrirtæki sem leggja mikla áherslu á sjálfbærni. Þess vegna viljum við að byggja upp vörumerki sem sameinar gæði, ábyrgð og nútímalega hönnun. Með því að velja náttúruleg og endingargóð efni getum við lengt líftíma fatanna og minnkað sóun. Þannig stuðlum við bæði að betra umhverfi og heilbrigðari framtíð fyrir komandi kynslóðir um allan heim. (EATware, 24. apríl 2024)